Íslenski rithöfundurinn Rán Flygenring hefur hlotið barna-og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir myndabókina Eldgos sem gefin var út á síðasta ári.
Rán er annar Íslendingurinn sem hlýtur verðlaunin, en þau voru fyrst veitt árið 2013.
Verðlaunin hlaut Rán við hátíðlega athöfn í óperu-og balletthúsinu í Ósló í kvöld. Það kom í hlut norska rithöfundarins Maju Lunde að afhenda verðlaunin.
Rán tók á móti verðlaunagripnum Norðurljós og hlaut í þokkabót þrjú hundruð þúsund danskar krónur, eða tæpar sex milljónir íslenskra króna.
Í tilkynningu sem Norðurlandaráð sendi frá sér í kvöld er greint frá rökstuðningi dómefndarinnar.
Þar segir að Rán hafi tekist að skapa myndabók fulla af sjónrænum sprengikrafti um þau áhrif sem villt og óhamin náttúra hafi á fólk og að mynd og texti fléttist listilega saman í fjöruga og sprenghlægilega sögu.
Jafnframt dragi Rán fram hvernig mótsagnakenndar tilfinningar vakni þegar jörð klofnar, hraun flæðir, ný fjöll verða til og þegar við stöndum fram við hversdagsógnir. Þannig sé frásögnin þrungin spennu sem sprottin sé úr samspilinu milli hins ægistóra og hins agnarsmáa.
Í rökstuðningi dómnefndarinnar er Rán einnig hrósað í hástert fyrir myndirnar sem bókin hefur að geyma.
„Myndirnar í bókinni eru sneisafullar af forvitnilegum og fyndnum smáatriðum sem hrífa hinn unga lesanda með sér,“ segir í rökstuðningi dómnefndar, sem segir mikilvæga áminningu fólgna í því sem Rán tekst að skapa með myndskreytingum sínum.
„Við hliðina á þessu marglita sjónarspili verða fölar manneskjurnar eins og áminning um að við erum öll, rétt eins og túristarnir, bara hér í heimsókn.“
Alls voru 54 verk, verkefni og listamenn tilnefnd til verðlauna Norðurlandaráðs í ár og voru íslenskar tilnefningar til verðlaunanna átta talsins.
Verðlaun eru veitt fyrir framlög til umhverfismála, bókmennta, barna-og unglingabókmennta, kvikmynda og tónlistar.
Í ár voru barna-og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs veitt í tíunda sinn og er Rán annar Íslendingurinn til þess að hreppa verðlaunin, en rithöfundurinn Arnar Már Arngrímsson hlaut þau árið 2016 fyrir skáldsöguna Sölvasaga unglings.