Alvarlegt umferðarslys á Reykjanesbraut

Alvarlegt umferðarslys varð klukkan 8.23 á Reykjanesbraut.
Alvarlegt umferðarslys varð klukkan 8.23 á Reykjanesbraut. Samsett mynd

Alvarlegt umferðarslys varð á Reykjanesbraut klukkan 8.23 nú í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Lögregla og sjúkralið eru á vettvangi en lögregla getur ekki gefið frekari upplýsingar að svo stöddu. 

Umferðartafir eru á Reykjanesbraut en önnur akrein, austur Reykjanesbraut er opin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert