Banaslys á Reykjanesbraut í morgun

Karlmaður á fertugsaldri lést í umferðarslysi á Reykjanesbraut, skammt austan við Fitjar í Reykjanesbæ í dag eftir að ökutæki sem hann ók valt. Lögreglan á Suðurnesjum greinir frá þessu í tilkynningu.

Viðbragðsaðilum barst tilkynning um slysið kl. 08.16 og fóru viðbragðsaðilar strax á vettvang.

Lögreglan á Suðurnesjum og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu, að því er segir í tilkynningu lögreglu.

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert