Skothvellir heyrðust í Úlfarsárdal

Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út í Úlfarsárdal í nótt.
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út í Úlfarsárdal í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út í Úlfarsárdal í á fimmta tímanum í nótt en fólk í hverfinu vaknaði upp við skothvelli.

Lögregla verst allra frétta af málinu en í frétt á RÚV og Vísi segir að fólk í hverfinu hafi heyrt skothvelli og sést hafi blóð á vettvangi. Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við mbl.is að innan tíðar yrði send út fréttatilkynning vegna málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert