Finnur Bjarnason verkefnastjóri nýrrar þjóðaróperu

Finnur Bjarnason
Finnur Bjarnason Ljósmynd/Stjórnarráðið

Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur tilkynnt að Finnur Bjarnason hafi verið ráðinn sem verkefnastjóri vegna stofnunar nýrrar þjóðaróperu. Ráðning Finns er til eins árs.

Finnur er menntaður í óperusöng og hefur lokið meistaragráðu í menningarstjórnun frá Bifröst með hæstu einkunn. Hann var um árabil fastráðinn söngvari við Komische Oper í Þýskalandi og hefur sem atvinnumaður og einsöngvari einstaka reynslu. Eftir nám á Bifröst hefur Finnur lagt stund á rannsóknir í menningarstjórnun við Bifröst.

Fram kemur að alls hafi 12 sótt um starfið en einn dró umsókn sína til baka.

Var það skoðun undirbúnings- og ráðgjafanefndar vegna stofnunar þjóðaróperu að Finnur Bjarnason uppfyllti best þau skilyrði sem sett voru fram í auglýsingu um starf verkefnisstjóra og var hann talinn standa öðrum umsækjendum framar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert