Athygli er vakin á jarðhræringum á Reykjanesskaga á vef Bláa lónsins, í borða sem mætir vefsíðugestum efst á síðunni. Ekkert er þó minnst á hættuna á yfirvofandi eldgosi, heldur tekið fram að byggingar lónsins séu gerðar til að þola skjálfta.
Með því að smella á borðann eru gestir færðir á undirsíðu þar sem gefnar eru frekari upplýsingar, eins og sjá má á skjáskoti hér að neðan.
Mikið hefur verið rætt síðustu daga um jarðhræringar á Reykjanesskaga og hættuna sem gæti stafað af eldgosi í nágrenni Bláa lónsins.
Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjalla- og bergfræði, telur líklegast að gos kæmi upp í grennd við Illahraunsgígja.
Kvikan gæti því komið upp í um kílómetra fjarlægð frá Bláa lóninu.
Í fyrstu útgáfu þessarar fréttar var fullyrt að ekki væri vakin athygli á jarðhræringunum á vef lónsins. Var þar rangt með farið og beðist er velvirðingar á því.