Upp úr klukkan fimm í morgun jókst skjálftavirkni við Eldvörp. Stærsti skjálftinn mældist 4,2 að stærð kl. 5.52.
Yfir 130 skjálftar hafa mælst síðasta klukkutímann og eiga þeir upptök á um 3-5 km dýpi. Enginn órói mælist á svæðinu en búast má við áframhaldandi jarðskjálftavirkni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni.
„Þetta eru líklegast gikkskjálftar. Þetta er fyrir utan þenslusvæðið,“ segir Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.
„Þessa skjálfta erum við ekki að tengja við kviku á hreyfingu,“ segir Elísabet enn fremur.
Skjálftarnir í morgun hafa víða fundist. Veðurstofan hefur meðal annars fengið tilkynningar frá íbúum Reykjanesskaga, höfuðborgarsvæðisins og Akraness.