Sæfari á leið í slipp

Grímseyjarferjan Sæfari.
Grímseyjarferjan Sæfari. mbl.is/RAX

Grímseyjarferjan Sæfari fer í slipp á mánudaginn og á meðan verður vöruflutningum sinnt á annan hátt og flugferðum Norlandair verður fjölgað ef þörf reynist.

Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar en Sæfari mun sigla til Grímseyja fram á sunnudaginn en fer síðan í slipp á mánudaginn. Áætlað er að taki um vikutíma að gera við ferjuna og falla  allar ferðir niður á meðan.

Í ljós kom í síðustu viku að hluti kúplingar framan á skrúfuás hafa losnað og við það hafði ásin gengið lítillega aftur og aflagað þéttingar. Skrúfan hefur ekki verið notuð á meðan og nauðsynlegt er að taka ferjuna í slipp til að lagfæra þetta og forða ferkari skemmdum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka