Vinnutímar flugvirkja á borð Hæstaréttar

mbl.is/Kristinn Magnússon

Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni íslenska ríkisins um að taka til meðferðar mál er varðar vinnutíma flugvirkja. Hæstiréttur telur að dómur í málinu geti haft fordæmisgildi meðal annars um túlkun á hugtakinu vinnutími í skilningi laga.

Í september staðfesti Lands­rétt­ur dóm héraðsdóms frá því í fe­brú­ar á síðasta ári í máli sem sneri að ferðatíma flug­virkja hjá Sam­göngu­stofu og skil­grein­ingu hans sem vinnu­tíma. Hafði flug­virk­inn bet­ur gegn ís­lenska rík­inu en leitað var eft­ir ráðgef­andi áliti EFTA-dóm­stóls­ins í mál­inu.

Fram kemur í ákvörðun Hæstaréttar, að ágreiningurinn lúti að því hvort tilteknar stundir, utan dagvinnutíma, sem flugvirkinn varði í ferðir erlendis vegna starfa sinna fyrir Samgöngustofu teljist vinnutími í skilningi laga.

Verulegur ferðatími

Með héraðsdómi var fallist á dómkröfu flugvirkjans en þó þannig að dreginn var frá sá tími sem hann hefði ella varið í daglegar ferðir til og frá reglulegri starfsstöð sinni. Landsréttur taldi að leyfisbeiðandi hefði ekki haldið fram sem málsástæðu fyrrgreindum frádrætti og því ekki tilefni til að draga þann tíma frá dómkröfum hans. Að því virtu en að öðru leyti með vísan til forsendna héraðsdóms var fallist á dómkröfur flugvirkjans.

Undir rekstri málsins var aflað ráðgefandi álits EFTA-dómstólsins um túlkun vinnutímahugtaks 2. gr. tilskipunar 2003/88/EB. Í héraðsdómi sem staðfestur var að þessu leyti með hinum áfrýjaða dómi kom fram að flugvirkinn hefði verið að sinna skyldum í þágu vinnuveitanda síns þegar hann fór í vinnuferðir erlendis utan hefðbundins vinnutíma.

Í öllum tilvikum hefði verið um að ræða verulegan ferðatíma og ferðalög sem tengdust ekki hefðbundinni starfsstöð. Þá hefði hann einnig verið við störf og til taks fyrir vinnuveitanda. Töldust nánar tilgreindar stundir sem gagnaðili varði í ferðir á vegum Samgöngustofu því vinnutími í skilningi laga.

Niðurstaða Landsréttar breyti áratugalangri framkvæmd

Íslenska ríkið byggir á því að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi og varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni sína. Niðurstaða Landsréttar breyti áratugalangri framkvæmd við ákvörðun vinnutíma og muni að óbreyttu leiða til kerfisbreytinga á vinnumarkaði starfsfólks sem ferðast til annars áfangastaðar en hefðbundinnar starfstöðvar. Um fordæmisgefandi mál sé að ræða sem hafi almenna þýðingu fyrir beitingu réttarreglna og fyrir samfélagið í heild sinni. Þá telur ríkið vafa leika á því hvort dómur Landsréttar sé réttur.

„Að virtum gögnum málsins verður talið að dómur í því geti haft fordæmisgildi meðal annars um túlkun á hugtakinu vinnutími í skilningi 1. töluliðar 52. gr. laga nr. 46/1980 og þýðingu vinnutímahugtaks 2. gr. tilskipunar 2003/88/EB í því sambandi. Beiðni um áfrýjunarleyfi er því samþykkt,“ segir í ákvörðun Hæstaréttar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert