Vöggustofubörn geta nú óskað eftir geðheilbrigðis- og sálfræðiþjónustu sér að kostnaðarlausu.
Reykjavíkurborg hefur samið við Kvíðameðferðarstöðina og Líf og sál, sálfræði og ráðgjafarstofu en borgin greiðir fyrir allt að 10 viðtöl fyrir hvern einstakling sem var vistaður á vöggustofunni að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Þjónustan verður i boði frá og með morgundeginum en hægt er að óska eftir henni hjá Reykjavíkurborg í síma 411-1400 eða í gegnum netfangið voggustofur@reykjavik.is.
Í tilkynningu Reykjavíkurborgar segir að um sé að ræða eina af þeim aðgerðum sem borgarráð samþykkti að fara í eftir útgáfu skýrslu um starfsemi vöggustofa í Reykjavík á árunum 1949-1973.