Tveggja bíla árekstur varð á Stekkjarbakka í Reykjavík upp úr klukkan hálfþrjú í dag. Einn var fluttur á sjúkrahús með minniháttar áverka.
Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir í samtali við mbl.is að útkall hafi borist klukkan 14:40 og að skömmu síðar hafi viðbragðsaðilar mætt á vettvang.