Verslunum lokað vegna netárásar

Verslunum fyrirtækisins var lokað vegna netárásar.
Verslunum fyrirtækisins var lokað vegna netárásar. Ljósmynd/Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Loka þurfti verslunum Pennans/Eymundssonar í dag vegna netárásar sem gerð var á fyrirtækið.

Þá er ekki hægt að komast inn á heimasíðu fyrirtækisins Penninn.is

Uppfært klukkan 14.57:

Í tilkynningu frá Pennanum segir að netárásin hafi verið gerð á tölvukerfi Pennans ehf. í morgun. Sérfræðingar vinni að því að greina og meta umfang árásarinnar og að nánari upplýsingar verði veittar þegar þær liggi fyrir.

Þá kemur enn fremur fram að verslanir Pennans verði áfram lokaðar í dag en að útgáfuhóf í verslunum í Austurstræti og á Skólavörðustíg verði haldin samkvæmt áætlun klukkan 17 í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert