Bláa lóninu lokað í eina viku

Meginástæður lokunarinnar eru sagðar truflun á upplifun gesta í nótt …
Meginástæður lokunarinnar eru sagðar truflun á upplifun gesta í nótt og langvarandi aukið álag á starfsmenn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bláa lóninu verður lokað í eina viku frá og með deginum í dag og til 16. nóvember klukkan 07.00.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Segir í tilkynningunni að þetta hafi verið ákveðið þrátt fyrir að viðbúnaðarstig almannavarna hafi ekki verið aukið, staðan verði metin í framhaldinu.

Meginástæður eru sagðar truflun á upplifun gesta í nótt og langvarandi aukið álag á starfsmenn.

„Bláa Lónið hf. mun fylgjast með framgangi hræringanna næstu sólarhringa og meta stöðuna. Okkar frábæru og tryggu starfsmenn fá greidd full laun meðan á lokun stendur og gestir fulla endurgreiðslu,“ eins og segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert