Farið verður með manninn á geðdeild í dag

Farið verður með unga manninn á geðdeild í dag.
Farið verður með unga manninn á geðdeild í dag. mbl.is/Ómar Óskarsson

Farið verður með unga manninn, sem situr í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni í alvarlegu geðrofi, á geðdeild í dag. Þetta staðfestir Páll Winkel fangelsismálastjóri í samtali við mbl.is.  

Við samkvæmt kröfu erum að fara með þennan einstakling á geðdeild ásamt tveimur fangavörðum. Þeir munu vera þar yfir honum á meðan við höfum mannafla til þess,“ segir Páll.

Telur hann þó líklegt að gerð verði krafa um að farið verið með manninn til baka á Litla-Hraun, þegar ekki verður hægt að manna gæsluna yfir honum lengur. 

Að sögn Páls verður maðurinn á geðdeild í sólarhring til að byrja með, nema hægt verði að manna gæsluna áfram. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert