Minntust harmleiksins í Jökulfjörðum fyrir fjörutíu árum

Jens Þór Sigurðarson flugstjóri, Helgi Rafnsson, flugvirki og spilmaður, Jóhann …
Jens Þór Sigurðarson flugstjóri, Helgi Rafnsson, flugvirki og spilmaður, Jóhann Eyfeld, sig- og stýrimaður, og Jóhannes Jóhannesson flugmaður. mbl.is/Árni Sæberg

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar minntist áhafnarinnar á TF-RAN, sem fórst í Jökulfjörðum 8. nóvember árið 1983, með sérstakri minningarstund við Jökulfjörð í gær.

TF-GNA, þyrla Gæslunnar, tók á loft frá Reykjavík kl. 11 í gær og var komin vestur upp úr hádegi. Þyrlusveitin lagði blómsveig í fjöruborðið til minningar um þá Björn Jónsson flugstjóra, Þórhall Karlsson flugstjóra, Bjarna Jóhannesson flugvirkja og Sigurjón Inga Sigurjónsson stýrimann sem fórust í slysinu.

Frá vinstri á myndinni eru Jens Þór Sigurðarson flugstjóri, Helgi Rafnsson, flugvirki og spilmaður, Jóhann Eyfeld, sig- og stýrimaður, og Jóhannes Jóhannesson flugmaður.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert