Fjöldahjálparstöðvar opnaðar

Tekið er fram að í Grindavík sé stöðin aðeins til …
Tekið er fram að í Grindavík sé stöðin aðeins til söfnunar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjöldahjálparstöðvar verða opnaðar nú á níunda tímanum í Íþróttahúsinu í Grindavík, Vallarskóla á Selfossi, Íþróttahúsinu við Sunnubraut í Reykjanesbæ og í Kórnum í Kópavogi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Tekið er fram að í Grindavík sé stöðin aðeins til söfnunar og upplýsinga og ef fólk þurfi aðstoð við að fara annað.

„Þar mun þeim sem þangað leita standa til boða hressing, upplýsingar og gisting ef á þarf að halda,“ segir í tilkynningu.

Grindavíkurvegur lokaður

Athygli er einnig vakin á að Grindavíkurvegur er lokaður að sinni vegna skemmda.

„Fólki er bent á að fara um Suðurstrandarveg á leið á Selfoss og Reykjavíkur eða Nesveg ef það velur að fara í Reykjanesbæ. Viðgerðir á Grindavíkurvegi standa yfir og upplýst verður ef og þegar Grindavíkurvegur verður opnaður á ný.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert