Fjöldi skjálfta yfir fjórum að stærð

Öflug jarðskjálftahviða hófst fyrr í dag.
Öflug jarðskjálftahviða hófst fyrr í dag. Kort/Map.is

Samkvæmt fyrstu tölum Veðurstofunnar hafa hátt í tuttugu skjálftar mælst frá klukkan 18 sem eru fjórir að stærð eða stærri.

Stærsti skjálftinn sem reið yfir síðustu klukkustundina var 4,9 að stærð og mældist klukkan 18.20.

Taka skal fram að þetta eru óyfirfarnar niðurstöður og gæti mat Veðurstofunnar á stærð skjálftanna tekið breytingum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert