„Fólk er farið að tínast sumt úr bænum,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, um ástandið þar. Hann bendir á að fólk hafi einnig yfirgefið bæinn síðustu helgi.
„Fólk vill komast út úr þessu skjálftaumhverfi, en sérstaklega núna þegar það er meiri kraftur í þeim.“
Fannar var á leið til Grindavíkur eftir erindagjörðir utanbæjar þegar mbl.is náði tali af honum nú í kvöld.
Hann sagðist þó vera í sambandi við vettvangsstjórn og aðgerðastjórn í Reykjanesbæ.
„Við erum ekki að huga að rýmingu,“ segir hann.