Gæsluvarðhald í skotárásarmálinu framlengt um viku

Skotárás við Silfratjörn 2 í Úlfarsárdal. Fimm verða í gæsluvarðhaldi …
Skotárás við Silfratjörn 2 í Úlfarsárdal. Fimm verða í gæsluvarðhaldi til næsta föstudags. mbl.is/Kristinn Magnússon

Gæsluvarðhald yfir fimm mönnum í tengsl­um við skotárás­ina í Úlfarsár­dal í síðustu viku hefur verið framlengt um viku, samkvæmt úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en hún fór fram á framlengt varðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Sex menn voru úr­sk­urðaðir í viku­langt gæslu­v­arðhald á föstudaginn í síðustu viku. Greint var frá því í morgun að ein­um þeirra hefði verið sleppt í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert