Guðni: Við Íslendingar stöndum saman

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, segist hugsa hlýtt til allra íbúa í Grindavík og þeirra sem nú sinna almannavörnum og hjálp í viðlögum.

Þetta segir forsetinn í stuttri kveðju á Facebook.

Höldum ró okkar og hjálpumst að

„Jörð skelfur nú á Reykjanesi sem aldrei fyrr á þessu ári. Hættustigi hefur verið lýst yfir og eldgos gæti verið í vændum nærri Grindavík, jafnvel á næstu sólarhringum,“ skrifar hann.

„Ég hugsa hlýtt til allra íbúa þar og þeirra sem nú sinna almannavörnum og hjálp í viðlögum. Við stjórnum ekki náttúrunni en þegar vanda og vá ber að höndum stöndum við Íslendingar saman. Höldum ró okkar og hjálpumst að.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert