Almannavarnir hafa gefið það út að Grindavíkurbær verði rýmdur.
Um það bil vika er liðin síðan almannavarnir gáfu út sérstaka rýmingaráætlun fyrir Grindavíkurbæ ef til eldgoss eða stórra jarðskjálfta kæmi. Skýringarmynd sem fylgir með áætluninni útlistar flóttaleiðir innanbæjar sem og út úr bænum.
Þar koma fram upplýsingar um helstu stofnanir og söfnunarmiðstöðvar. Flóttaleiðir úr bænum eru um Nesveg, Grindarvíkurveg og Suðurstrandarveg.
Tekið er fram að ef til rýmingar komi muni koma boð frá Neyðarlínunni (112). Er íbúum þá skylt að rýma hús sín. Fólk skuli þá:
Tilkynna á um þörf á aðstoð og slys í síma 112. Sé ekki símasamband skuli hvít veifa sett á hurð eða glugga.
Foreldrar eða forráðamenn skulu sækja börn sín á leik- og grunnskóla. Eru þeir hvattir til að sækja þau fótgangandi ef aðstæður leyfa.
Fjöldahjálparstöðvum verður komið á laggirnar í íþróttahúsinu við Sunnubraut í Reykjanesbæ, Kórnum í Kópavogi og Vallaskóla á Selfossi.
Söfnunarmiðstöð í Grindavíkurbæ verður í íþróttamiðstöðinni. Ekki er nauðsynlegt að koma við þar. Hún er helst ætluð þeim sem þurfa aðstoð við að komast út úr bænum.
Brýnt er fyrir Grindvíkingum að kynna sér þessar upplýsingar vel.
Rýmingaráætlun fyrir Grindavíkurbæ
Uppfært: Í fyrri frétt sagði að fjöldahjálparstöðin í Reykjanesbæ yrði í Reykjaneshöll, en því hefur verið breytt í íþróttahúsið við Sunnubraut.