Dreifikerfið í Grindavík víða laskað

Hvorki rafmgan né heitt vatn er á nokkrum húsum í …
Hvorki rafmgan né heitt vatn er á nokkrum húsum í Grindavík. mbl.is/Kristinn Magnússon

Ljóst er að veitukerfi HS Veitna í Grindavík eru víða löskuð vegna jarðskjálfta og þeirrar jarðgliðnunar sem orðið hefur. Í hluta bæjarins er hvorki heitt vatn né rafmagn sem stendur og óvissa ríkir um hvort og hvenær starfsfólk HS Veitna getur gert við kerfið. 

Í tilkynningu frá HS Veitum kemur fram að starfsfólk HS Veitna hafi unnið hörðum höndum í fyrrinótt og frameftir degi í gær að halda uppi rafmagni og hita á húsum í Grindavík. Síðan hafi starfsfólki verið gert að rýma bæinn. 

„Hvað heita vatnið varðar er heitavatnslaust á skyggða svæðinu á meðfylgjandi mynd. Líklegt er að talsvert sé af lekum víðar í kerfinu. Ekki hefur verið unnt að vinna bilanagreiningu á vettvangi vegna neyðarstigs og rýmingar. Sérstaklega er varað við hættu sem skapast af heitu vatni á yfirborði eða í skurðum,“ segir í tilkynningunni. 

Heitavatnslaust á skyggða svæðinu.
Heitavatnslaust á skyggða svæðinu. Kort/HS Veitur

„Hvað rafmagnið varðar er nú rafmagnslaust á þeim stöðum sem eru rauðmerktir á meðfylgjandi kortum. Líklegt er að rafmagnsleysi sé víðar í kerfinu vegna bilana í götuskápum og lágspennustrengjum sem liggja í húsagötum. Ekki hefur verið unnt að bilanagreina á vettvangi vegna neyðarstigs og rýmingar. Sérstaklega er varað við hættu sem skapast vegna laskaðra raforkumannvirkja og strengja,“ segir enn fremur um rafmagnið. 

Rafmagnslaust á þeim stöðum sem eru rauðmerktir á kortinu.
Rafmagnslaust á þeim stöðum sem eru rauðmerktir á kortinu. Kort/HS Veitur

Í tilkynningunni segir að öryggi starfsfólks ávallt í fyrirrými og vinnur fyrirtækið náið með almannavörnum að því að meta hvort og þá hvenær mögulegt veri að ráðast í viðgerðir.

„Það verður að teljast ólíklegt eins og ástandið er að það gerist í bráð, enda kalla slíkar viðgerðir á talsvert af mannskap og tækjum og geta tekið langan tíma.“  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert