Íbúar í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík fá leyfi til að fara inn á sín heimili og sækja það allra nauðsynlegasta. Ítreka skal að almenningur hefur ekki leyfi til þess að fara á svæðið án fylgdar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Einn úr hverri fjölskyldu getur farið inn í sitt hús og hefur um fimm mínútur til að sækja lífsnauðsynjar. Heimamaðurinn skal vera í fylgd með viðbragðsaðilum.
Mótstaður íbúa í Þórkötlustaðahverfi er á bílastæðunum við Fagradalsfjall á Suðurstrandarvegi.
Öðrum íbúum Grindavíkur verður ekki heimilt að fara inn í bæinn.
„Þetta er staðan í dag og næstu klukkutíma. Að svo stöddu er ekki svigrúm til að fara inn í önnur hverfi bæjarins,“ segir í tilkynningunni.
Viðbragðsaðilar mun nýta birtu dagsins í þessar aðgerðir.