Mótmæla drónabanni

Samgöngustofa tilkynnti í dag að vegna líklegs eldgoss hefði drónaflug …
Samgöngustofa tilkynnti í dag að vegna líklegs eldgoss hefði drónaflug verið bannað á allstóru svæði yfir og í kringum Grindavík. mbl.is/Árni Sæberg

Blaðamannafélag Íslands (BÍ) mótmælir drónabanni á svæðinu yfir og í kringum Grindavík og biðlar félagið til yfirvalda að liðka fyrir aðgangi blaðamanna að svæðinu, bæði við núverandi aðstæður og ef eldgos hefst. 

Hefur erindi nú verið sent til lögreglustjórans á Suðurnesjum, almannavarna og Samgöngustofu, að því er fram kemur í yfirlýsingu BÍ.

Hvergi vísað í lagaheimildir

Samgöngustofa tilkynnti í dag að drónaflug væri bannað fyrir ofan og nálægt Grindavík vegna yfirvofandi eldgoss. Í tilkynningunni er bannið ekki rökstutt og hvergi vísað í lagaheimildir.

Þess skal geta að drónaflug á vegum ríkislögreglustjóra, almannavarna og Landhelgisgæslu Íslands er undanþegið banninu, að því er fram kemur á vef Samgöngustofu. 

Í kjölfar tilkynningarinnar um bannið leitaði mbl.is útskýringa hjá Samgöngustofu. Að sögn upplýsingafulltrúa er drónabannið annars vegar til að flygildin trufli ekki hugsanlegt vísindaflug og hins vegar til að tryggja að fólk sé ekki á skil­greindu hættu­svæði.

Góðar samskiptaleiðir mikilvægar

Ljósmyndarar, myndatökumenn og aðrir blaða- og fréttamenn sem eru að störfum á hættusvæði þurfa að að sjálfsögðu að gæta fyllstu varúðar og gæta þess að skapa ekki hættu fyrir vísindamenn og björgunarfólk,“ segir í yfirlýsingu BÍ, þar sem m.a. er vísað í frétt mbl.is.

„Við þessar aðstæður er því mikilvægt að góðar samskiptaleiðir séu til staðar milli blaðamanna og yfirvalda svo tryggja megi öryggi vísindamanna og björgunarfólks um leið og myndum af atburðunum er miðlað til almennings. Að mati Blaðamannafélags Íslands er hins vegar óeðlilegt að yfirvöld banni alfarið drónaflug blaðamanna við störf.“

Augu og eyru almennings

Í yfirlýsingunni segir jafnframt að í hamfaraástandi sé hlutverk blaðamanna að vera augu og eyru almennings og flytja fólki sem gleggstar og nákvæmastar upplýsingar af atburðunum, og þar á meðal myndefni.

Fram kemur á vef Samgöngustofu að drónaflug á vegum ríkislögreglustjóra, Almannavarna og Landhelgisgæslu Íslands sé undanþegið banninu. Blaðamannafélag Íslands telur eðlilegt að blaðamenn við störf verði einnig undanþegnir því. Um leið vill félagið árétta mikilvægi almenns aðgangs blaðamanna að hinu lokaða svæði, eftir því sem mögulegt er og í samráði við yfirvöld.

Biðlar félagið til lögreglustjóra, almannavarna og Samgöngustofu að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að liðka fyrir aðgangi blaðamanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert