Tímabundnar aðgerðir til að sækja nauðsynjar

Frá rýmingunni á föstudagskvöld.
Frá rýmingunni á föstudagskvöld. mbl.is/Eyþór

Sameiginlegt mat stöðufundar Veðurstofunnar, almannavarna og sérfræðinga Háskóla Íslands er að íbúar Grindavíkur megi sækja nauðsynjar. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni. 

Stöðufundinum lauk klukkan 11. Í tilkynningunni segir að það hafi verið sameiginlegt mat fundarins út frá nýjustu gögnum að svigrúm sé til tímabundinna aðgerða á vegum almannavarna til að sækja nauðsynjar fyrir íbúa og sinna brýnum erindum í Grindavík og nágrenni.

„Á meðan að á þeim aðgerðum stendur verður vakt svæðisins aukin og fylgst náið með merkjum um hvort að kvika komi upp. Það var mat vísindamanna eða ráðlegt væri að hefja þessar aðgerðir strax þar sem óvissa um framvindu atburðarins vex eftir því sem líður á daginn.“

Mesta skjálftavirknin frá miðju kvikugangsins

Í tilkynningunni segir að frá morgni 11. nóvember hefur skjálftavirknin við kvikuganginn haldist nokkuð stöðug.

Frá miðnætti 12. nóvember hafa um 1000 skjálftar mælst og hafa þeir allir verið undir 3,0 að stærð.

Mesta skjálftavirknin hefur verið frá miðju gangsins norðan við og suður undir Grindavík. Flestir skjálftanna eru á 3-5 km dýpi við neðri hluta kvikugangsins.

Fréttin hefur verið uppfærð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert