Ljósmyndari Rúv reyndi að fara inn í mannlaust hús

Fréttastjóri Rúv hefur beðist afsökunar á vinnubrögðum ljósmyndarans.
Fréttastjóri Rúv hefur beðist afsökunar á vinnubrögðum ljósmyndarans. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ljósmyndari RÚV reyndi að komast inn í mannlaust hús í Grindavík í dag. Náðist það á öryggismyndavél og birti íbúinn myndskeið af því á Facebook. 

Í yfirlýsingu til fjölmiðla kveðst fréttastjóri Rúv, Heiðar Örn Sigurfinnsson, harma atvikið og biðst afsökunar á því. Segir hann að vinnubrögðin sem sjást á myndskeiðinu ekki vera í anda vinnureglna eða þess anda sem fréttatofan starfar í. 

Búið sé að skerpa á verkferlum og vinnureglum og brýna fyrir þeim sem fara á vettvang að virða einkalíf og eigur Grindvíkinga. 

Yfirlýsing fréttastjóra Rúv:

„Starfsmaður RÚV sást í dag á öryggismyndavél reyna að komast inn í yfirgefið hús og leita að lyklum að læstum dyrum. Fréttastofa RÚV harmar þetta atvik og biður íbúa hússins og alla Grindvíkinga innilegrar afsökunar á því. Fréttamenn RÚV hafa kappkostað að fjalla um atburðina í Grindavík af virðingu fyrir íbúum og eigum þeirra, og vinnubrögðin sem sjást á myndskeiðinu eru ekki í anda vinnureglna eða þess anda sem fréttastofan starfar í. Við höfum rekið [svo] atvikið til misskilnings og óðagots á vettvangi, en munum í kjölfarið fara yfir verkferla okkar og vinnureglur og brýna fyrir öllum þeim sem fara á vettvang að virða einkalíf og eigur Grindvíkinga, og valda þeim ekki meiri óþægindum eða sorg en þeir upplifa fyrir.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert