Efling býður 25 orlofshús til afnota fyrir íbúa Grindavíkur

Viðbragðsaðilar við Grindavík fyrr í dag.
Viðbragðsaðilar við Grindavík fyrr í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Efling hefur ákveðið að bjóða Grindvíkingum orlofshús félagsins til notkunar meðan þörf er á vegna ástandsins sem ríkir nú á Reykjanesskaga. 

Efling býður 25 orlofshús á Suðurlandi til afnota fyrir íbúa Grindavíkur.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Eflingar. Hún er svohljóðandi:

„Í ljósi þeirrar gríðarlega erfiðu stöðu sem skapast hefur í Grindavík, en allir íbúar bæjarins hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna náttúruhamfara, verða orlofshús Eflingar boðin Grindvíkingum til notkunar meðan þörf er á að beiðni viðbragðsaðila.

Efling býður 25 orlofshús á suðurlandi til afnota fyrir íbúa Grindavíkur. Hvert hús rúmar frá 5 – 10 einstaklinga. Í húsunum er öll helstu heimilistæki að finna. Starfsfólk Eflingar og umsjónarmenn orlofshúsa vinna nú að því að undirbúa orlofshúsin til notkunar. Efling þakkar félagsfólki sem hafði bókað dvöl í umræddum orlofshúsum fyrir skilninginn í þeim erfiðu aðstæðum sem nú ríkja. Útfærsla á úthlutun orlofshúsa er enn í vinnslu, en til að fá úthlutað orlofshús bendir Efling á að hafa samband við Rauða krossinn í síma 570 4000. Ef ekki næst samband við Rauða krossinn er hægt að hafa samband við Eflingu með tölvupósti á efling@efling.is.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert