Samstaða ríkir í borgarráði, um að Reykjavíkurborg greiði götu bæjarstjórnar Grindavíkur og Grindvíkinga og aðstoði eins og hægt er.
Þetta kemur fram í sameiginlegri bókun borgarráðs sem samþykkt var í dag.
Þar eru bæjarstjórn Grindavíkur og Grindvíkingum öllum einnig sendar innilegar samstöðukveðjur, „vegna þeirra alvarlegu atburða sem hafa átt sér stað í Grindavík og óvissunnar sem nú ríkir þar“, segir í bókuninni.
„Borgarráð lýsir jafnframt yfir þakklæti sínu í garð starfsfólks almannavarna, björgunarsveita og Grindvíkinga sjálfra sem unnið hafa sleitulaust að því að tryggja öryggi íbúa. Borgarráð býður starfsfólk Grindavíkurbæjar velkomið í Ráðhús Reykjavíkur og lýsir yfir eindregnum vilja til þess að aðstoða við þau brýnu verkefni sem fram undan eru.“
Í tilkynningu frá borginni kemur fram að eftir fund með sviðstjórum fræðslumála á vettvangi almannavarna höfuðborgarsvæðisins hafi í upphafi vikunnar verið ákveðið að skipta verkum milli sveitarfélaga, til að virkja sem flest og dreifa verkefnum.
„Þannig setji sveitarfélögin fólk í teymi eins og þau hafi ráðrúm til. Mikilvægt sé að gera þetta á þeirra hraða og í samræmi við óskir Grindvíkinga,“ segir í tilkynningunni.
Eftirfarandi listi fylgir:
Tekið er fram að horft sé til þess að sveitarfélög Reykjanesskagans og Árborg og Ölfus verði með í þessari vinnu ef það henti þeim sem og fulltrúar frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
„Skóla- og frístundasvið og velferðarsvið hafa að beiðni almannavarna þegar unnið að ýmsum tillögum til að aðstoða og koma til móts við Grindvíkinga þegar kemur að fræðslumálum og velferðarþjónustu og er lagt til að sviðin haldi því áfram í samstarfi við Grindavíkurbæ og almannavarnir,“ segir í tilkynningunni.
Tekið er fram að fagsviðum borgarinnar og miðlægri stjórnsýslu verði falið að útfæra tillögur til að greiða aðgengi íbúa Grindavíkur að þjónustu Reykjavíkurborgar eins og kostur er og í samræmi við formlegar óskir almannavarna.
„Þá verður Grindvíkingum boðið að nýta sundlaugar borgarinnar og söfn sér að endurgjaldslausu og gildir hið sama um Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Börnum og ungmennum verður boðið á æfingar hjá íþróttafélögum án endurgjalds í samstarfi við ÍBR og UMFG og sérstaklega skoðað hvort koma megi á æfingum á vegum UMFG í samstarfi við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu.“
Enn fremur er vikið að því að margir Grindvíkingar búi nú í það minnsta tímabundið á höfuðborgarsvæðinu. Samþykkti borgarráð tillögu samgöngustjóra um tímabundna heimild til frávika frá reglum um íbúakort vegna neyðarástands.
„Íbúar með lögheimili í Grindavík með tímabundna búsetu innan íbúakortasvæða geta sótt um íbúakort sem nánar er útfært í tillögu samgöngustjóra. Gildir heimildin frá samþykkt til 31. janúar 2024.
Beiðnir á grundvelli þessarar tímabundnu heimildar um afgreiðslu íbúakorta fara í gegnum þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 411-1111 eða á netfangið upplysingar@reykjavik.is, þaðan sem þeim verður komið áfram til úrvinnslu hjá Bílastæðasjóði.
Í beiðni um afgreiðslu íbúakorta þarf að koma fram nafn og kennitala viðkomandi, lögheimili og fastanúmer þess, yfirlýsing um tímabundinn búsetustað innan íbúakortasvæðis, tímabundið heimilisfang og tímalengd búsetu ef hún liggur fyrir, bílnúmer, netfang og símanúmer.“
Einnig er bent á að starfsfólk bæjarskrifstofa Grindavíkurbæjar hafi komið sér vel fyrir á annarri hæð Ráðhúss Reykjavíkur.
Fáni sveitarfélagsins var í dag dreginn að húni við Ráðhúsið. Við það tækifæri bauð Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur Grindvíkinga formlega velkomna, og ávarpaði einnig Fannar Jónsson bæjarstjóra Grindavíkur.
Haft er eftir Degi við þetta tilefni á vef Reykjavíkurborgar.
„Fólk áttar sig oft ekki á því fyrr en á raunastundu hvað starfsemi sveitarfélaga er mikið lím í samfélaginu. Við viljum vera til staðar eftir fremsta megni og ég dáist að Fannari og samstarfsfólki hans vegna framgöngu þeirra síðustu daga. Hjá borginni ríkir alls staðar vilji til að aðstoða eftir megni svo ekki hika við að benda okkur á hvað við getum gert. Velkomin!“
Fannar er sagður hafa þakkað ómetanlegan stuðning og drógu þeir Dagur fána Grindavíkur að húni í sameiningu.