Tvöfalt kerfi myndi koma sér vel

Hjúkrunarheimilið Víðihlíð er illa farið eftir jarðaskjálftana.
Hjúkrunarheimilið Víðihlíð er illa farið eftir jarðaskjálftana. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, segist ekki vita til þess að Grindvíkingar séu að færa lögheimili sín yfir til annarra sveitarfélaga og vonast hann til þess að flestir geti flutt til síns heima þegar fram líða stundir.

Hann segir að skoða þurfi að koma upp tvöföldu skráningarkerfi aðseturs og lögheimils.

Fannar og hans fólk í stjórnsýslu Grindavíkur hafa svo sannarlega haft í nógu að snúast vegna þeirra atburða sem eru í gangi í og við Grindavík en fólki var gert að rýma bæinn síðastliðið föstudagskvöld. Starfsmenn bæjarins hafa reynt að meta skemmdir á mannvirkjum bæjarins undanfarið.

„Við erum komin með mjög góða aðstöðu í Ráðhúsi Reykjavíkur og í þjónustumiðstöðinni í Tollhúsinu. Kerfið okkar er farið að virka vel og við erum að slípa saman mannskapinn. Það eru engir stórir hnökrar hvað þetta varðar,“ segir Fannar spurður hvernig gangi að stýra bænum og stjórnsýslunni frá Ráðhúsinu.

Fannar segist hafa komið við í þjónustumiðstöðinni fyrir Grindvíkinga sem opnaði í Tollhúsinu við Tryggvagötu í gær.

„Ég leit þar við í gær og það var slatti af fólki sem mætti á svæðið. Við verðum með sérfræðinga á staðnum til að ræða ýmis mál sem brenna á fólki. Rauði krossinn dekkar sálfræðiþáttinn og fagmenntað fólk frá Grindavík og víðar er á staðnum,“ segir Fannar.

Sum hús verða ekki löguð

Hafið þið eitthvað náð að skoða eignir bæjarins frá því hann var rýmdur?

„Já það hafa verið menn frá okkur eins og frá skipulagssviðinu, þjónustumiðstöðinni og áhaldahúsinu síðustu daga og eru enn. Þeir hafa verið að fara yfir lagnakerfið og reyna að átta sig á því hverjar skemmdirnar eru. Veitufyrirtækin hafa líka verið á staðnum. Rafmagnið fór af stórum hluta bæjarins í gær og það kaldavatnslaust í þó nokkrum hluta bæjarins. Það er verið að reyna að halda þessu gangandi,“ segir Fannar.

Hann segir að sum hús í bænum séu illa farin eftir jarðskjálftahrinuna sem hefur verið í gangi frá því síðari hluta októbermánaðar og náði hámarki um síðustu helgi.

„Það eru sem betur fer ekki öll hús illa farin en sum íbúðarhús og atvinnuhús verða ekki löguð. Fólk var tiltölulega ánægt með að hafa geta komist heim síðustu dagana, skoðað eignir sínar og náð í sína verðmætustu hluti.“

Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar
Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar mbl.is/Eggert Jóhannesson

Margir með fjárhagsáhyggjur

Fannar segir að Grindvíkingar hafi dreift sér á marga staði eftir að þeim var gert að rýma bæinn en íbúafjöldi í bænum er um 3.700.

„Fólk fór bara á þá staði þar sem laust húsnæði var að finna. Það eru mjög margir sem hafa fengið inni hjá ættingjum og vinum tímabundið en langstærsta og erfiðasta verkefnið er að finna húsnæði fyrir fólkið. Það er eitt af forgangsmálunum sem og skólamálin og fjárhagsmálin. Það eru margir með fjárhagsáhyggjur og það er teymi sem er að vinna í þessum málum og skoða ýmsar leiðir hvað það varðar,“ segir Fannar.

Hafið þið einhverja vitneskju um það hvort fólk sé að færa lögheimil sín á aðra staði?

„Við vitum ekki til þess. Það er verið að skoða hvort hægt sé að skrá aðsetur annars staðar en það þarf lagabreytingu til þess. Það myndi henda okkur vel og íbúunum líka að koma á tvöföldu skráningarkerfi. Við viljum eðlilega ekki missa útsvarstekjurnar og okkar von er sú að fólk geti flutt til síns heima þegar fram líða stundir. Einhverjir munu fara úr bænum og skrá þá lögheimili sitt annarsstaðar en ég held að það sé enginn að hugsa um það núna,“ segir Fannar.

Sveitafélög út um allt land hafa boðið húsnæði

Fannar segir að mörg sveitarfélög hafi sett sig í samband og boðið húsnæði sem hægt væri að nota fyrir skóla- og leikskólahald.

„Sveitarfélög út um allt land hafa boðið okkur húsnæði en mestur þunginn er á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og á Suðurlandi. Það eru margir sem gista í sumarhúsum í uppsveitum Árnessýslu. Ég hef heyrt í bæjarstjórunum á því svæði og það er komin af stað einhver vinna við að taka á móti börnum og foreldrum sem eru að gefa sig fram að sjálfsdáðum. Við viljum koma á einhverri festu í lífi barnanna sem eru í grunnskóla og leikskóla og okkar skólayfirvöld eru að vinna í þessu á fullu.“

Fannar segist eiga von á góðri mætinu í íþróttahúsið í Smáranum í Kópavogi á laugardaginn þar sem karla-og kvennalið Grindavíkur verða bæði í eldlínunni í Subway-deildunum í körfubolta.

„Ég held að það verði mjög góð mæting á leikina og að fólk sýni okkur Grindvíkingum stuðning.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert