Níu stéttarfélög skora á lánastofnanir að veita Grindvíkingum fullt greiðsluhlé næstu þrjá mánuði vegna þeirra hörmunga sem á þeim dynja. Einnig er skorað á lánastofnanir að þeir muni falla frá vöxtum og verðbótum á tímabilinu.
Stéttarfélögin sem skrifuð eru fyrir áskoruninni eru Byggiðn – Félag byggingamanna, Efling-stéttarfélag, Matvæla og veitingafélag Íslands (MATVÍS), Rafiðnaðarsamband Íslands, Sjómanna og vélstjórafélag Grindavíkur, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Verkalýðsfélagið Hlíf, VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna og VR stéttarfélag.
Áskorunin í heild sinni:
„Grindvíkingar takast nú á við einhverjar mestu náttúruhamfarir sem orðið hafa í byggð á Íslandi í hálfa öld. Fjögur þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín og búa við mikla óvissu um framtíð sína og fjárhagslega afkomu. Ljóst er að gífurlegar skemmdir hafa orðið á eignum í bænum og óvíst hvort eða hvenær Grindvíkingar geta snúið aftur.
Undirrituð samtök launafólks skora á lánastofnanir að veita Grindvíkingum fullt greiðsluhlé næstu þrjá mánuði vegna þeirra hörmunga sem á þeim dynja. Í þeirri áskorun felst jafnframt að lánastofnanir falli frá vöxtum og verðbótum á tímabilinu.
Mikilvægt er að Grindvíkingar fái fjárhagslegt svigrúm til að takast á við þau áföll sem þeir hafa orðið fyrir og þann nýja veruleika sem við þeim blasir.“