Dómsmálaráðherra hefur skipað þriggja manna sifjalaganefnd til þess að vinna að endurskoðun á hjúskaparlögum og barnalögum og hefur nefndin þegar tekið til starfa.
Fjallað er um þessi áform í samráðsgátt stjórnvalda. Þar kemur fram að nefndin skuli skila ráðherra drögum að lagafrumvörpum fyrir 1. september 2024, annars vegar drögum að frumvarpi til breytinga á hjúskaparlögum og eftir atvikum breytingum á öðrum lögum, og hins vegar drögum að frumvarpi til breytinga á barnalögum og eftir atvikum breytingum á öðrum lögum.
Þegar samþykktar voru breytingar á hjúskaparlögum á Alþingi á síðasta ári var kveðið á um það í bráðabirgðaákvæði að ákvæði hjúskaparlaga og framkvæmd þeirra skuli endurskoðuð innan tveggja ára frá samþykkt laganna og einnig tekið fram að dómsmálaráðherra skuli kynna niðurstöður endurskoðunarinnar eigi síðar en á haustþingi 2024. Umræddar breytingar á hjúskaparlögum tóku gildi 1. júlí 2023, en markmið frumvarpsins var m.a. að styrkja stöðu þolenda heimilisofbeldis og einfalda skilnaðarferli fyrir hjón sem væru sammála um að enda hjúskap sinn.
Við meðferð frumvarpsins hjá Alþingi tók allsherjar- og menntamálanefnd það fram í nefndaráliti sínu að þörf væri á heildarendurskoðun á lögum er lúta að hjúskap til þess að stuðla að fullnægjandi réttaröryggi fyrir þolendur heimilisofbeldis. Meiri hluti nefndarinnar beindi því til dómsmálaráðherra að taka m.a. til endurskoðunar hjúskaparlög. Þá taldi meiri hlutinn t.a.m. þörf á að ákvæði reglugerðar um skilyrði gjafsóknar yrðu rýmkuð svo meðferð skilnaðarmála, fjárskipta eða forsjármála yrðu þolendum heimilisofbeldis ekki jafn íþyngjandi og hún væri nú.
Barnalögum var einnig breytt á síðasta ári en með breytingunum var foreldrum t.a.m. gert heimilt að semja um skipta búsetu barns. Við meðferð frumvarpsins hjá Alþingi tók allsherjar- og menntamálanefnd það fram í nefndaráliti sínu að ekki lægi alveg fyrir hvaða áhrif fyrirkomulag um skipta búsetu og framkvæmd þess hefði á kynin og ólíka hópa og í þeim efnum var vísað til umfjöllunar um fyrirkomulag á útreikningi barnabóta í tengslum við skipta búsetu.
Meiri hluti nefndarinnar taldi mikilvægt að innan þriggja ára frá samþykkt frumvarpsins færi fram endurskoðun, einkum á fyrirkomulagi um skipta búsetu og framkvæmd þess, eins og með útreikning barnabóta, en að fleiri atriði þyrfti að taka til endurskoðunar, m.a. í ljósi laga um kynrænt sjálfræði og atriða sem snúa að framfærslu og meðlagi.