Flest afplánunarúrræði sett með karlmenn í huga

Fram kemur í Bangkok-reglum Sameinuðu þjóðanna að konur í fangelsum …
Fram kemur í Bangkok-reglum Sameinuðu þjóðanna að konur í fangelsum séu oft í mjög viðkvæmri stöðu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Magnús Árni Skjöld Magnússon, þingmaður Samfylkingarinnar, segir konur vera lítinn hluta þeirra sem hljóti refsidóma á Íslandi eða að jafnaði innan við 10% dómþola. Kvenfangar séu jafnframt oft í viðkvæmri stöðu og afbrotahegðun þeirra og karla sé ólík. Á sama tíma séu afplánunarúrræði oft sett með karlmenn í huga. 

Þetta var meðal þess sem kom fram þegar Magnús talaði um konur í fangelsum á Alþingi í dag er hann tók til máls umræðu um störf þingsins.

Magnús Árni Skjöld Magnússon, þingmaður Samfylkingarinnar, beindi fyrirspurnum sínum til …
Magnús Árni Skjöld Magnússon, þingmaður Samfylkingarinnar, beindi fyrirspurnum sínum til dómsmálaráðherra á Alþingi í dag.

Kvenfangar oft í viðkvæmri stöðu

Nefndi hann hinar svokölluðu Bangkok-reglur Sameinuðu þjóðanna um meðferð kvenfanga en þar kemur fram að konur í fangelsum séu oft á tíðum í mjög viðkvæmri stöðu og að flest afplánunarúrræði hafi í gegnum tíðina verið sett með karlmenn í huga. 

„Raunin er sú að kvenkyns afbrotamenn bera oft þungar byrðar andlegra og líkamlegra veikinda að líkindum í meira mæli en karlkyns fangar samkvæmt því sem rannsóknir leiða í ljós,“ sagði hann.

Lagði Magnús því fram fyrirspurn til dómsmálaráðherra hvort gert væri ráð fyrir konum í nýju fangelsi á Litla-Hrauni, hvort áætlað væri að vista konur áfram í öryggisfangelsi á Hólmsheiði, hvort fangelsisvist yrði að fullu kynjaskipt og hversu mikla þörf ráðherra teldi á öryggisfangelsi fyrir konur á Íslandi.

Afbrotahegðun kvenna og karla ólík

Í framhaldinu vitnaði Magnús Árni í greinargerð frjálsu félagasamtakanna Rótarinnar, sem reka Konukot, neyðarskýli fyrir heimilislausar konur í Reykjavík, en þar kemur meðal annars fram að afbrotahegðun karla og kvenna sé mjög ólík og að yfirleitt séu aðrar ástæður fyrir því að konur fremji afbrot en karlar.

„Þær fremja aðallega smáglæpi, þjófnað og minniháttar vímuefnabrot. Oft er horft fram hjá þörfum þeirra í fangelsum enda eru þær fáar hlutfallslega. Stór hluti kvenna í fangelsum er þar beint eða óbeint vegna margþættrar mismununar og skorts og fáar eru dæmdar fyrir ofbeldisglæpi,“ sagði hann.

„En mikill meirihluti þeirra hafa sjálfar verið beittar miklu ofbeldi, margar þeirra allt frá fæðingu. Þar að auki eru konur oft í fangelsum beint eða óbeint vegna glæpa karla, svokölluð burðardýr,“ bætti hann við og vitnaði að lokum aftur í Bangkok-reglur Sameinuðu þjóðanna þar sem segir að mjög fáar konur eigi erindi í öryggisfangelsi, að fangelsin séu almennt gagnslaus og skaðleg lausn á afbrotavanda kvenna og komi jafnvel í veg fyrir að þær geti aðlagast samfélaginu á ný.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert