Grindvískir atvinnurekendur geta óskað eftir aðstoð

Grindvískir atvinnurekendur geta óskað eftir aðstoð í þjónustugátt sem má …
Grindvískir atvinnurekendur geta óskað eftir aðstoð í þjónustugátt sem má finna á island.is Ljósmynd/Eggert

Atvinnurekendur og forsvarsfólk fyrirtækja með starfsemi í Grindavík geta nú óskað eftir aðstoð við að finna húsnæði fyrir starfsemi sína.

Fram kemur í tilkynningu sem almannavarnir sendu frá sér í kvöld að búið sé að opna sérstaka þjónustugátt inni á island.is sem ætluð sé fyrir atvinnurekendur og forsvarsmenn fyrirtækja með starfsemi í Grindavík.

Þjónustugáttin er hluti af starfsemi þjónustumiðstöðvar fyrir Grindvíka sem rekin er í Tollhúsinu við Tryggvagötu. 

Í þjónustugáttinni geta atvinnurekendur skráð niður upplýsingar um fyrirtæki sín, svo sem tegund starfsemi, lágmarksþörf í fermetrum talið og fjölda starfsfólks hjá fyrirtækinu sem þarf starfsaðstöðu í húsnæðinu. 

Í tilkynningunni segir að forsvarsfólk fyrirtækja sem vanti starfsaðstöðu sé hvatt til þess að skrá fyrirtæki sín í þjónustugáttina. Þá verði reynt eftir fremsta megni að finna þeim sem skrái sig laust húsæði eða aðstöðu til þess að geta haldið starfsemi sinni áfram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert