Land heldur áfram að rísa við Svartsengi að sögn Veðurstofu Íslands. Tekið er fram að hraðinn á risinu í Svartsengi hafi haldist nánast óbreyttur síðasta sólarhringinn.
Þetta kemur fram í nýju stöðuyfirliti Veðurstofunnar sem hefur verið birt.
Þar kemur fram, að frá miðnætti í dag hafi 165 jarðskjálftar, allir undir 2 að stærð, mælst við kvikuganginn, en það sé nokkuð færri en síðustu daga en þá hafa mælst um 1.500-1.800 skjálftar á sólarhring.
„Gera má ráð fyrir að hvassviðri sem nú gengur yfir landið hefur áhrif á næmni kerfisins til að finna minnstu skjálftana, því er erfitt að meta hvort dragi úr skjálftavirkni að stöddu.
Áfram hægir á aflögun í og við kvikuganginn sem myndaðist 10. nóvember en land heldur áfram að rísa við Svartsengi. Hefur hraðinn á risinu í Svartsengi haldist nánast óbreyttur síðasta sólarhringinn,“ segir í tilkynningunni.
Þá segir að Veðurstofan muni, í góðu samstarfi við sérfræðinga Háskóla Íslands,halda áfram vakta svæðið eins vel og hægt er og stöðugt endurmeta og túlka þau gögn sem berast.
Í tilkynningunni segir jafnframt, að Veðurstofan hafi aukið á vöktun í og við Grindavík, sem og á svæðinu umhverfis Hagafell á meðan íbúar nálgast eigur sínar og verðmæti og verktakar vinna við varnargarða.
„Skilvirkni þessarar vöktunar veltur á góðri næmni jarðskjálfta- og rauntíma GPS-mælinga en næmnin er mjög háð veðuraðstæðum. Í ljósi þess að veðurspá næstu tveggja daga bendir til úrkomu og talsverðs vinds má gera ráð fyrir að bæði næmni jarðskjálfta- og rauntíma GPS-vöktunar Veðurstofunnar skerðist. Brim hefur áhrif á lágu tíðnina í óróamælingunum þar sem öldur koma fram sem órói. Þoka og dimm él hafa síðan áhrif á sjónræna staðfestingu á gosi með myndavélum.“