Verðmætabjörgun úr 100 fasteignum í dag

Verðmætabjörgun heldur áfram í Grindavík.
Verðmætabjörgun heldur áfram í Grindavík. mbl.is/Kristinn Magnússon

Búið er að hafa samband við þá íbúa Grindavíkur sem eiga þess kost að fara inn í bæinn frá klukkan 9 í dag. Heimildin tekur til rúmlega 100 fasteigna. Eftir kl. 15 í dag verður fyrirtækjum hleypt inn á svæðið. 

Þeir einir fá að fara inn í bæinn sem hafa fengið boð um það.  Skráning er í gegnum island.is, að því er segir í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Þar kemur fram að áætlanir dagsins geta breyst án fyrirvara.

Aðkomuleið fyrir íbúa til verðmætabjörgunar í dag er um Suðurstrandarveg. Mót er við gatnamót Krýsuvíkurvegar. 

Ítrekað er að þeir einir fara inn í Grindavík sem hafa fengið boð um það. Samhliða þessu eru viðbragðsaðilar í sérverkefnum.

Frá Grindavík í vikunni.
Frá Grindavík í vikunni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Nánar úr tilkynningunni:

„Vakin er athygli á því að það er ekki sjálfsögð krafa að fara inn á hættusvæði sem hefur verið rýmt af öryggisástæðum. Fyrst og fremst þarf að huga að öryggi viðbragðsaðila sem flestir eru sjálfboðaliðar.  Þeirra öryggi þarf ávallt að tryggja. Áfram eru miklar líkur taldar á eldgosi,” segir í tilkynningunni.

„Íbúar eru upplýstir um framkvæmdina og hvenær þeir eiga að mæta við gatnamót Grindavíkurvegar og Krýsuvíkurvegar. Íbúar verða fluttir með viðbragðsaðilum frá söfnunarstað utan Grindavíkur og frá heimilum í Grindavík til baka.

Í dag eru viðbragðsaðilar að vinna inn á mesta hættusvæði Grindavíkur. Fjölmiðlafólk hafi samband við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra varðandi aðgang að lokuðum svæðum.  Undanþágur frá drónabanni eru veittar en afgreiðsla þeirra er í höndum ríkislögreglustjóra. Vegna veðurs er ekki gert ráð fyrir drónum inn á svæðinu í dag.

Íbúum Grindavíkurbæjar er bent á góða upplýsingagjöf á heimasíðu Grindavíkurbæjar www.grindavik.is og heimasíðu almannavarna www.almannavarnir.is.”

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka