Menningar- og viðskiptaráðuneytið telur ekki ástæðu til að aðhafast neitt frekar vegna nýrrar útgáfu á Dimmalimm.
Ráðuneytið hefur haft málið til skoðunar eftir áskorun frá Rithöfundasambandinu vegna mögulegra brota á sæmdarrétti listamannsins Muggs.
Útgefandi bókarinnar fagnar niðurstöðunni en er ekki sáttur við framgöngu sambandsins, Myndstefs og ráðuneytisins.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.