Fella niður vexti af íbúðalánum Grindvíkinga

Vextir og verðbætur falla niður af íbúðalánum Grindvíkinga í þrjá …
Vextir og verðbætur falla niður af íbúðalánum Grindvíkinga í þrjá mánuði. Samsett mynd

Vegna náttúruhamfara og óvissuástands í Grindavík hafa Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn, í samvinnu við Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), gert samkomulag um að fella niður vexti og verðbætur af íbúðalánum Grindvíkinga í þrjá mánuði.

Þetta kemur fram í tilkynningur frá SFF.

Í tilkynningunni segir að með þessu vilji bankarnir koma til móts við viðskiptavini sína í Grindavík sem standa frammi fyrir mikilli óvissu varðandi tekjur, útgjöld, húsnæði og afdrif eigna sinna. Með því að bankarnir þrír hafi komist að þessu samkomulagi sé stuðlað að jafnræði á milli lántaka bankanna í Grindavík.

Takmarkast við lán að hámarki 50 milljónir króna

„Þessi aðgerð bankanna og SFF er liður í heildarstæðari úrlausn fyrir Grindvíkinga, með aðkomu stjórnvalda og fleiri aðila, sem gert er ráð fyrir að verði kynnt á næstu dögum,“ segir í tilkynningunni.

Niðurfellingin verður á vöxtum og verðbótum fyrir nóvember og desember 2023 og janúar 2024 og mun hún takmarkast við vexti og verðbætur af láni að hámarki 50 milljónir króna. Ef lántaki er með hærra lán miðast niðurfelling við að fjárhæð lánsins sé 50 milljónir króna.

Í tilkynningunni kemur fram að nánari útfærsla á niðurfellingunni sé í höndum hvers banka fyrir sig. Samkomulagið taki til ákveðinna lágmarksviðmiða en feli ekki í sér nein höft á því að einstakir bankar geti veitt viðskiptavinum sínum frekari fyrirgreiðslu eða keppt að öðru leyti á grundvelli viðskiptaskilmála.

Þegar boðið Grindvíkingum frestun á afborgunum

„Auk niðurfellingar vaxta og verðbóta í 3 mánuði, hafa allir bankarnir hafa þegar boðið Grindvíkingum greiðsluskjól , þ.e. að fresta öllum afborgunum af íbúðalánum sínum, og fleiri úrræði

Það er fullur vilji allra bankanna að vera hluti af heildarlausn og koma með sanngjörnum hætti til móts við Grindvíkinga. Ljóst er að enn ríkir mikil óvissa um framhaldið og munu bankarnir fylgjast vel með stöðu mála sinna viðskiptavina,“ kemur fram í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert