Á morgun mega Grindvíkingar fara inn í bæinn á stærri bifreiðum sem eru allt að 3,5 tonn í heildarþyngd. Einnig verða kerrur leyfðar í íbúðahverfum, en það mátti ekki í dag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum nú rétt fyrir klukkan 19.
Nýtt fyrirkomulag var tekið upp í dag þar sem Grindvíkingar fengu að sækja verðmæti og huga að eigum sínum frá kl. 11 til 16. Á morgun verður heimilt að fara inn í bæinn milli klukkan 9 og 16.
Í tilkynningunni segir að hættustig sé enn í gildi en að líkur á fyrirvaralausu eldgosi séu taldar minni en áður. Þá sé talið að svigrúm til að bregðast við eldgosi rýmri en áður.
Öryggi Grindvíkinga sé þó í fyrirrúmi og því gæti þurft að rýma bæinn með stuttum fyrirvara.
Upplýsingar fyrir Grindvíkinga sem vilja sækja verðmæti eða huga að eignum sínum:
- Íbúar í Grindavík beðnir um að skrá sig á www.island.is og fá þar heimild til þess að fara inn. Heimildin mun berast fljótt.
- Þeir íbúar sem nú þegar hafa fengið staðfesta skráningu á beiðni til að fara inn í húseign þurfa ekki að sækja um aftur.
- Grindavík er lokuð fyrir öllum öðrum en íbúum bæjarins og þeim sem aðstoða íbúa.
- Grindavíkurvegur er lokaður, en hægt er að aka Nesveg og Suðurstrandarveg.
- Mælst er til þess að fólk komi á eigin bílum, hámark 1 bíll á hvert heimili. Ekki er æskilegt að börn séu tekin með sökum aðstæðna á staðnum.
- Áfram eru gámabílar, gámar eða gámaflutningatæki, stórir sendibílar (yfir 3.5 tonn), ekki leyfðir.
- Hvorki er virkt frárennsli né rennandi vatn þannig að ekki hægt að nota salerni í húsum í Grindavík. Salerni eru í bænum við grunnskólana tvo.
- Mælt er með að fólk komi með vatn og önnur matföng fyrir daginn því ekki er hægt að nálgast slíkt í bænum.
- Hafa ber í huga að hús gætu verið ótrygg. Hægt er að hafa samband við viðbragðsaðila á staðnum.
- Þeim íbúum í skemmdum húsum sem þegar hafa fengið leyfi er heimilt að flytja búslóðir sínar burt.
- Mikilvægt er að hvert og eitt heimili skrái hjá sér þau verðmæti sem tekin eru úr húsunum og hafi samband við sitt tryggingafélags vegna þess.
- Eigendur húsa eru hvattir til þess að koma kyndingu í lag en von er á kólnandi veðri á næstunni.
- Iðnaðarmenn og íbúar verða að störfum í húsum þar sem hitaveita er ekki í lagi.
- Íbúar eru hvattir til þess að ganga um og frá húsum sínum með þeim hætti að komið geti til rýminga með stuttum fyrirvara.
- Mikilvægt er að þau sem fara til Grindavíkur fylgi tilmælum viðbragðsaðila á öllum stundum.
- Athygli er vakin á að á sama tíma og íbúar fá aðgang er unnið að öðrum verkefnum í bænum.
- Fjölmiðlum er heimilaður aðgangur.
- Komi til rýmingar vegna hættuástands munu viðbragðsaðilar þeyta sírenum og ljósmerkjum á ökutækjum og þýðir það tafarlaus rýming á svæðinu samkvæmt rýmingaráætlun. Rýmingarleiðir út bænum eru eftir Suðurstrandavegi eða Nesvegi.