Íbúar með heimild geti keyrt beint inn í bæinn

Gunnar Schram yfirlögregluþjónn segir í samtali við mbl.is að það …
Gunnar Schram yfirlögregluþjónn segir í samtali við mbl.is að það þurfi ekki lengur að skrá sig inn í bæinn. Íbúar með heimild geti keyrt beint inn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum heimilaði íbúum að sækja verðmæti og huga að eignum sínum í Grindavík milli klukkan 11 og 16 í dag. Það getur breyst án fyrirvara en aðgerðum er stýrt af lögreglu.

Metið verður daglega hvort svigrúm verður til opnunar á ný og þá stefnt að hafa opið frá 9 til 16 á daginn.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Gunnar Schram yfirlögregluþjónn segir í samtali við mbl.is að misskilnings hafi gætt við lokunarpósta á morgun þar sem fram fór skráning á öllum sem lögðu leið sína inn í bæinn.

Það þurfi ekki lengur að skrá sig inn í bæinn, íbúar með heimild geti keyrt beint inn. Fram fari bílatalning og að lögregla hafi eftirlit með því að erlendir ferðamenn séu ekki að þvælast inn á svæðið.

Lögregla biður fólk að fara varlega

Íbúar eru beðnir að skrá sig í gegnum island.is en heimild til að fara inn í bæinn mun berast fljótt að því er fram kemur í tilkynningunni. Tekið er fram að þeir íbúar sem nú þegar hafa fengið staðfesta skráningu á beiðni til að fara inn í húseign þurfi ekki að sækja um aftur.

Aðkomuleið er um Suðurstrandarveg og Nesveg en Grindavíkurvegur er áfram lokaður. Lögregla biður fólk að fara varlega þar sem töluverð hálka er á Suðurstrandarvegi og Nesvegi.

Lögregla mælist til þess að fólk komi á eigin bílum en að hámark sé einn bíl á hvert heimili. Gámabílar, gámar, gámaflutningatæki, stórir sendibílar, kassabílar og kerrur eru ekki heimilar í íbúðahverfum vegna hættu á því að þau tefji eða hindri aðra umferð með tilliti til öryggi fólks á svæðinu.

Lögreglan mun telja bíla inn á svæðið.
Lögreglan mun telja bíla inn á svæðið. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ekki hægt að nota salerni og ekki hægt að nálgast matföng

Í tilkynningunni segir að hvorki sé virkt frárennsli né rennandi vatn í bænum þannig að ekki sé hægt að nota salerni í húsum en stefnt er að því að koma upp salernum í bænum.

Þá er mælt með því að fólk komi með vatn og önnur matföng fyrir daginn því ekki sé hægt að nálgast slíkt í bænum.

Þá segir að hafa beri í huga að hús gætu verið ótrygg og vakin er athygli á því að hægt sé að hafa samband við viðbragðsaðila á staðnum.

Lögregla segir ekki æskilegt að börn séu tekin með sökum aðstæðna á staðnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert