Óska eftir myndefni: Þýfið hleypur á milljónum

Frá Bolungarvík.
Frá Bolungarvík. mbl.is/Sigurður Bogi

Lögreglan á Vestfjörðum hefur hrint af stað rannsókn í kjölfar þjófnaðar sem átti sér stað í Bolungarvík síðustu helgi.

Að sögn lögreglunnar hleypur andvirði þess sem var stolið á mörgum milljónum króna.

Lögreglan gaf í gær út tilkynningu þar sem óskað var eftir upplýsingum um grunsamlegar mannaferðir í Bolungarvík frá eftirmiðdegi föstudagsins 17. nóvember til klukkan 21.30 að kvöldi laugardagsins 18. nóvember.

Óska eftir myndefni

Auk þessa hefur lögregla óskað eftir upplýsingum um það hvort fyrirtæki á staðsett í Bolungarvík og við leiðina frá Bolungarvík út af norðanverðum Vestfjörðum búi yfir myndefni úr öryggismyndavélakerfum sem nýst gætu við rannsókn málsins.

Segir lögreglan að svokallaðir GPS-hattar verið teknir af vinnuvélum í eigu verktaka í bænum.

Fram kemur í tilkynningu lögreglu að þeir sem telji sig búa yfir upplýsingum sem nýst gætu við rannsókn málsins sé bent á að gera lögreglunni viðvart með því að hringja í síma 444-0400 eða með því að senda tölvupóst á netfangið vestfirdir@logreglan.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert