Hnífstunguárás í Reykjavík í nótt

Maður var stunginn með hnífi í Reykjavík í nótt og tengist árásin hnífstunguárás í fangelsinu á Litla-Hrauni í gær og skotárásinni í Úlfarsárdal í síðasta mánuði. Frá þessu greinir Ríkisútvarpið.

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir í samtali við Rúv að hnífstunguárás hafi verið framin í Reykjavík í nótt og segir hann að fórnarlambið sé ekki í lífshættu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert