Tímabundinn fjárhagslegur stuðningur vegna aukins húsnæðiskostnaðar verður veittur Grindvíkingum vegna jarðhræringa á svæðinu. Þá verður sett í forgang að tryggja Grindvíkingum húsnæði til leigu á meðan á almannvarnarástandi og rýmingu stendur og eftir atvikum lengur ef þörf krefur.
Þessar stuðningsaðgerðir voru samþykktar á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun.
Húsnæðisstuðningur við Grindvíkinga var kynntur á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum sem lauk fyrir skömmu.
Til að mæta húsnæðisþörfinni hefur m.a. verið leitað til Bríetar leigufélags um að kaupa allt að 150 nýjar íbúðir. Þá mun Bjarg íbúðafélag koma að því að mæta sérstaklega húsnæðisþörf tekjulægri heimila í Grindavík með mögulegum kaupum á allt að 60 íbúðum.
Gert er ráð fyrir að íbúðirnar verði til afhendingar á næstu vikum.
Um 3.700 íbúar voru með skráð lögheimili í Grindavík áður en jarðhræringarnar sem nú standa yfir hófust.
Talið er að um 700 einstaklingar, eða um 200 fjölskyldur, þurfi á húsnæði að halda fyrir áramót eins og er. Miðast þetta við þær umsóknir sem borist hafa um skammtímahúsnæði. Hafa flestir óskað eftir húsnæði á höfuðborgarsvæðinu eða Suðurnesjum.
Í næstu viku hyggst Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra leggja fram frumvarp á Alþingi um sértækan húsnæðisstuðning til að koma til móts við aukinn kostnað þeirra sem þurfa að leigja sér húsnæði utan Grindavíkur vegna jarðhræringanna.
„Stuðningurinn verður tímabundinn til þriggja mánaða og endurskoðaður fyrir lok þess tímabils með tilliti til þarfar á áframhaldandi stuðningi. Veittur verður mánaðarlegur húsnæðisstuðningur sem fer stighækkandi eftir fjölda heimilisfólks gegn framvísun skráðs leigusamnings,“ segir á vef Stjórnarráðsins.
Er heildarkostnaður við stuðningskerfið metinn á um 220-240 m.kr. á mánuði.
„Til að mæta húsnæðisþörf Grindvíkinga sem rýma hafa þurft heimili sín hefur m.a. verið leitað til Bríetar leigufélags, sem er að fullu í eigu ríkisins, um að kaupa allt að 150 nýjar íbúðir á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess, til leigu fyrir Grindvíkinga,“ segir á vef Stjórnarráðsins.
„Leitað verður hagstæðustu tilboða í eignirnar sem fjármagnaðar verða af Húsnæðissjóði. Þá mun Bjarg íbúðafélag koma að því að mæta sérstaklega húsnæðisþörf tekjulægri heimila í Grindavík með mögulegum kaupum á allt að 60 íbúðum. Gert er ráð fyrir að íbúðirnar verði til afhendingar á næstu vikum.“
Kemur þar fram að samtals verði því unnt, í samtarfi við Grindavíkurbæ, að ráðstafa allt að 210 nýjum íbúðum innan skamms til Grindvíkinga til að leysa brýna húsnæðisþörf.
„Grundvöllur verkefnisins er að samningar náist við verktaka um kaup á tilbúnum íbúðum á hagstæðu verði og ráðist verði í það í skrefum samhliða stöðugu mati á húsnæðisþörf. Litið er á verkefnið sem tímabundið á meðan óvissu gætir um framhald mála vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga. Sérstök viljayfirlýsing var undirrituð í Ráðherrabústaðnum í dag við leigufélögin Bríeti og Bjarg um kaup á ofangreindum íbúðum.“