Þingmaður Pírata var handtekinn

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir var handtekin síðasta föstudag.
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir var handtekin síðasta föstudag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, var handtekin síðasta föstudag á skemmtistaðnum Kíkí qu­eer bar. Þetta staðfestir hún í samtali við mbl.is.

„Ég vil byrja á því að segja að ég ber virðingu fyrir störfum öryggisgæslufólks. Ég held að það sé mjög snúið og þungt starf og þarna – á þessum tíma sérstaklega – þá er fólk, þá bera þau ábyrgð á og gæta öryggis stórs hóps af fólki sem er kannski ekki alveg upp á sitt besta, ef svo má segja,“ segir Arndís í samtali við mbl.is.

Segir Arndís að ástæða handtökunnar sé sú að hún hafi verið of lengi inn á salerni skemmtistaðarins. Öryggisgæslan hafi því reynt að vísa henni út. Bætir hún því við að dyraverðir hafi snúið hana niður.

„Dyraverðir óskuðu eftir aðstoð. Dyraverðir voru búnir að snúa mig niður vegna þess að það átti að henda mér út fyrir að hafa verið of lengi á salerninu, það er bara svoleiðis. Ég er þingmaður og ég hugsaði með mér: „Það er kannski ekki alveg ástæða til að bera mann hér út“. Þetta var óþarflega niðurlægjandi og óþarflega mikil harka af þeirra hálfu [dyravarðanna] og þar streitist ég á móti og þetta kannski vindur upp á sig og þau óska eftir aðstoð lögreglu við að koma mér út.“

Svo var Arndísi ekið heim og engir eftirmálar, að hennar sögn.

Með öllu tilefnislaust

„Ég vil fagna viðbrögðum lögreglunnar vegna þess að Kíkí er hinsegin staður og þarna eru einstaklingar sem eru í sérstaklega viðkvæmri stöðu og það er gríðarlega mikilvægt að það sé tryggt öryggi fólks og það að lögreglan hafi komið án þess að spyrja spurninga, þeir gera það. Lögreglan kemur bara vegna þess að dyraverðir óska aðstoðar. Hún bara kemur, spyr engra spurninga. Lögreglan kom mjög fagmannlega fram og ég vil koma þökkum til þeirra. Þeir voru kurteisir og brugðust hratt við og allt frábært þar,“ segir Arndís og bætir við:

„Bara þakkir fyrir hröð viðbrögð, þó þeir hafi ekkert vitað hvað var í gangi og að mínu mati að þetta væri með öllu tilefnislaust, sem sagt það sem gerist.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert