Ragnhildur Helgadóttir
Um helgina var vakin athygli á því á samfélagsmiðlinum X að í fjölbýlishúsinu við Bríetartún 9 til 11 væri stór hluti íbúða notaður undir skammtímaleigu til ferðamanna. Á mynd sem þar birtist má sjá að 29 íbúðir eru í eigu SIF Apartments.
Í aðeins fimm íbúðum virðist fólk hafa fasta búsetu. Af heimasíðu SIF Apartments má greinilega sjá að fyrirtækið rekur gistiþjónustu fyrir ferðamenn.
Á miðlinum kemur fram nokkur gremja sökum þess að íbúðirnar hafi upphaflega verið hugsaðar sem viðbót við almennan markað, en ekki til útleigu til ferðamanna.
árið 2019 reis stór íbúðablokk miðsvæðis í Reykjavík, Reykjavíkurborg fagnaði og sagði að tryggt væri að íbúðirnar færu til fólks á húsnæðismarkaði, max 30% af íbúðum mættu fara í ferðamenn/hótel eitthvað : þetta er staðan þar í dag pic.twitter.com/jh2p9vtd10
— Helga Lilja (@Hellil) November 25, 2023
Í apríl 2018 fjallaði Morgunblaðið um það að umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefði synjað því að veita gistileyfi fyrir 38 íbúðir við Bríetartún 9-11. Í húsinu eru alls 94 íbúðir.
Stuttu síðar var synjuninni hins vegar snúið við. Í umfjöllun Morgunblaðsins kom fram að sennilega væri án fordæmis að svo margar íbúðir í nýju húsi væru leigðar út til ferðamanna.
Hjálmar Sveinsson var formaður umhverfis- og skipulagsráðs árið 2018. Er hann þar enn fulltrúi. Hann segir þetta slæma þróun sem komi sér á óvart. „Ég er mjög hissa á henni.“
Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.