Gísli Herjólfsson, einn stofnenda og forstjóri Controlant, segir að erfitt hafi verið að kveðja áttatíu starfsmenn í dag. Umfang dreifingar Covid-bóluefna hafi minnkað hraðar á síðustu mánuðum en spár gerðu ráð fyrir og var nauðsynlegt að ráðast í uppsagnir til að skapa sjálfbæran rekstur til framtíðar. Þá hafi hópuppsögnin ekki verið að kröfu fjárfesta.
Þrátt fyrir allt sé Controlant í sóknarhug og er fyrirtækið nú að þróa vörur sem munu hafa þann möguleika að gjörbylta hvernig aðfangakeðja lyfja verður eftir nokkur ár.
„Í dag vorum við að kveðja marga góða vini. Gott starfsfólk sem að hefur lagt mjög hart að sér og byggt upp gríðarlega mikla þekkingu. Ég veit það að önnur fyrirtæki hér í kringum okkur verða mjög heppin að fá þau til starfa sem fyrst.“
Áttatíu var sagt upp hjá fyrirtækinu í dag en að sögn Gísla var uppsögnunum lokið um hádegi. Voru þær þvert á deildir fyrirtækisins. Í kjölfar breytinga sem tilkynnt var um í dag er starfsfólk félagsins 450 talsins.
„Í byrjun faraldursins svöruðum við kallinu frá Pfizer og einnig frá Bandaríkjastjórn við að hjálpa þeim í dreifingu á bóluefnum á heimsvísu.“
Þegar Covid-faraldurinn byrjar var Controlant með 60 starfsmenn í vinnu og voru langflestir á Íslandi.
Verkefnið fyrir höndum var stórt og viðamikið og krafðist mikils mannafla. Þurftu stjórnendur fyrirtækisins að bregðast hratt við og ráða fjölda fólks.
„Við fórum mest yfir 500 starfsmenn á rúmum tveimur árum, sem er gríðarlega mikill og hraður vöxtur. Þrátt fyrir að við vissum að þetta Covid-verkefni myndi ekki vara að eilífu þá voru allar sviðsmyndir þannig að þetta myndi smám saman minnka á nokkrum árum.
Það sem að gerist núna er að sviðsmyndin breytist. Það er töluvert minni eftirspurn eftir bóluefnum síðasta ársfjórðunginn á þessu ári sem hefur áhrif inn á næsta ár.“
Að sögn Gísla hefur umfang bóluefnadreifingar í tengslum við Covid minnkað töluvert hraðar heldur en spár gerðu ráð fyrir.
„Þegar að Covid-verkefnið minnkar svona snögglega þá hefur það í rauninni áhrif þvert á fyrirtækið. Við þurfum ekki eins stórt fyrirtæki til þess að fara inn í næsta ár og halda áfram að sinna verkefnum sem tengjast okkar kjarnastarfsemi .“
Sjáiði fyrir ykkur að þurfa að ráðast í frekari aðgerðir á næstu mánuðum?
„Þessar aðgerðir, það er að segja þessi fjármögnun og fækkun á starfsfólki, hún er gerð til þess að byggja upp sjálfbæran rekstur til framtíðar miðað við þau verkefni sem eru fyrir framundan.“
Eins og greint var frá fyrr í dag tryggði Controlant sér 80 milljóna Bandaríkjadala fjármögnun til þess að styðja við áframhaldandi vöruþróun og markaðssókn. Fyrirtækið starfar í dag fyrir 8 af 20 af stærstu lyfjafyrirtækjum heims og að sögn Gísla er fyrirtækið enn í sóknarhug.
„Okkar markmið er að útrýma sóun í aðfangakeðju lyfja og við erum að halda okkar vegferð áfram núna. Þessi fjármögnun er mikill styrkur fyrir okkur til þess að að halda áfram á okkar vegferð og farið í markaðssókn til að halda áfram að vaxa til lengri tíma.“
Að sögn Gísla eru margar nýjar lausnir í farvatninu.
„Eitt af því sem við erum að gera núna er að koma rauntímavöktunarlausnum okkar á markað á heimsvísu fyrir allan iðnaðinn. Við erum einnig að vinna í enn frekari vöruþróun sem mun hafa þann möguleika að gjörbylta hvernig aðfangakeðja lyfja verður eftir nokkur ár. Það er mikill sóknarhugur í fyrirtækinu þrátt fyrir allt.“
Voru þessar uppsagnir að kröfu þeirra sem komu að fjármögnuninni?
„Nei, krafan er í rauninni að tryggja sjálfbæran rekstur og það kemur hvorki frá fjárfestum eða öðrum heldur frá fyrirtækinu sjálfu. Út af þessum breytingum erum við að byggja sjálfbæran rekstur til framtíðar.“