Bæjarstjóranum bjargað ofan af þakinu

Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, bjargað af þaki bæjarskrifstofu Kópavogs í …
Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs, bjargað af þaki bæjarskrifstofu Kópavogs í dag. mbl.is/Eggert Johannesson

Rýming bæjarskrifstofu Kópavogsbæjar vegna elds og reyks var æfð í dag og samhliða fór fram björgunaræfing þar sem Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra var bjargað ofan af þaki byggingarinnar í körfubíl.

Jafnframt fóru reykkafarar inn í bygginguna til að bjarga einstaklingi í hjólastól á 2. hæð en æfingin var liður í eldvarnaátaki Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna sem nú fer fram um allt land. Að björgun lokinni fór fram sýnikennsla í notkun slökkvibúnaðar og starfsfólki bauðst að spreyta sig á að slökkva elda. Starfsfólkið fékk jafnframt afhent eintak af handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins.

Æfingin fór fram í samvinnu Landssambandsins, Kópavogsbæjar og slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert