Tíu hjálparsamtök fá styrk í aðdraganda jóla

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í dag að veita tíu hjálparsamtökum …
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í dag að veita tíu hjálparsamtökum sem starfa hér á landi styrk í aðdraganda jóla mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í dag að veita tíu hjálparsamtökum sem starfa hér á landi styrk í aðdraganda jóla eins og gert hefur verið undanfarin ár.

Fram kemur á vef Stjórnarráðsins að styrkurinn nemur alls 8 milljónum króna og skiptist upphæðin jafnt á milli hjálparsamtakanna tíu.

Þau hjálparsamtök sem fá styrkinn að þessu sinni eru:

Fjölskylduhjálp Íslands

Hjálparstarf kirkjunnar

Hjálpræðisherinn á Íslandi

Mæðrastyrsnefnd Akureyrar

Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar

Mæðrastyrksnefnd Kópavogs

Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur

Mæðrastyrksnefnd Vesturlands

Rauði krossinn á Íslandi

Samhjálp

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert