Þrír heppnir Íslendingar unnu bónusvinning í Vikinglotto í kvöld og fær hver þeirra tæpar 600.000 krónur í sinn hlut.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá Lottó. Einn miðanna var keyptur í Lottó-appinu og hinir tveir á lotto.is.
Fyrsti vinningur gekk ekki út í útdrætti kvöldsins en tveir miðahafar, annar í Danmörku og hinn í Noregi, voru með 2. vinning í Vikinglotto og fær hvor þeirra rúmar 173,5 milljónir króna.
Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en tveir miðahafar voru með 2. vinning og fá þeir 100.000 krónur hvor. Annar miðinn var keyptur á lotto.is en hinn miðinn í áskrift.