Kynslóðaskipti hjá Geislavörnum ríkisins

Sigurður M. Magnússon, fráfarandi forstjóri Geislavarna ríkisins, og Elísabet Dolinda …
Sigurður M. Magnússon, fráfarandi forstjóri Geislavarna ríkisins, og Elísabet Dolinda Ólafsdóttir, sem hefur tekið við af honum. Ljósmynd/island.is

Elísabet Dolinda Ólafsdóttir tók við sem nýr forstjóri Geislavarna ríkisins í dag eftir að Sigurður M. Magnússon hefur látið af störfum sem forstjóri stofnunarinnar, eftir farsælan 38 ára starfsferil.

Frá þessu greinir stofnunin í tilkynningu. Elísabet Dolinda hefur starfað hjá Geislavörnum ríkisins síðan árið 1991 en frá árinu 2016 hefur hún gegnt starfi aðstoðarforstjóra samhliða hlutverkum gæðastjóra og starfsmannastjóra.

Heyrir undir heilbrigðisráðuneytið

Sigurður hefur verið forstjóri stofnunarinnar frá árinu 1986, þegar Geislavarnir ríkisins voru settar á fót með lögum. Starfsfólk Geislvarna þakkar Sigurði innilega fyrir frábært samstarf og býður Elísabetu hjartanlega velkomna til starfa sem forstjóri.

Hlutverk Geislavarna ríkisins er að annast öryggisráðstafanir gegn geislun frá geislavirkum efnum og geislatækjum. Starfsemi Geislavarna ríkisins heyrir undir heilbrigðisráðuneytið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert