Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 22. nóvember að veita Sóltúni heilbrigðisþjónustu ehf. vilyrði til eins árs fyrir lóð nr. 43 við Hringhamar í Hamranesi. Auk þess hafa bæjaryfirvöld í Hafnarfirði átt í viðræðum við heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um nýja heilsugæslu í bæjarfélaginu.
Hafnarfjarðarbær óskaði í sumar eftir tilboðum frá áhugasömum byggingar- og rekstraraðilum í lóðina með hugmyndum að uppbyggingu, þjónustu- og rekstrarfyrirkomulagi. Samhliða hafa bæjaryfirvöld átt í viðræðum við heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um nýja og glæsilega heilsugæslu í bæjarfélaginu til að svara einnig enn betur þörf stækkandi hóps íbúa.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ.
Um er að ræða lóð sem er 6.726 fermetrar að stærð og samkvæmt deiluskipulagi ætluð fyrir hjúkrunarheimili, heilsugæslu og tengda þjónustu, en heimilt er að reisa allt að fimm hæða byggingu á lóðinni.
Byggingarreitur lóðarinnar er rúmur og innan hans skal koma fyrir bílastæðum, útivistarsvæði, aðkomu neyðarbíla og byggingum. Gert er ráð fyrir allt að 80 hefðbundnum hjúkrunarrýmum, þar sem heimilisfólk hefur sérrými til afnota ásamt sameiginlegum svæðum og skjólsælum útisvæðum.
Lóðarhafi mun sjálfur gera samning um rekstur og byggingu þjónustunnar gagnvart viðeigandi ríkisstofnun.
„Lífaldur Íslendinga fer hratt hækkandi sem þýðir að það er áríðandi að mæta og sinna þörfum stækkandi hóps aldraðra með viðeigandi þjónustu. Á sama tíma og það er mikilvægt að bjóða upp á fjölbreytt úrræði sem draga úr eftirspurn eftir dýrari þjónustuúrræðum, þá er einnig vaxandi þörf fyrir fjölgun hjúkrunarrýma fyrir aldraða sem þarfnast sólarhringsheilbrigðisþjónustu. Við erum að svara því kalli með því að bjóða okkur fram í byggingu nýs hjúkrunarheimilis í Hamranesi,“ er haft eftir Höllu Thoroddsen, forstjóra Sóltúns heilbrigðisþjónustu, í tilkynningunni.
Vilji fyrir því að ný stór heilsugæsla rísi í Hafnarfirði hið fyrsta
Að undanförnu hafa bæjaryfirvöld í Hafnarfirði átt í viðræðum við heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um uppbyggingu á nýrri heilsugæslu í Hafnarfirði sem myndi þjóna allt að 20.000 manns.
Miðsvæði Valla er talið hentugasta staðsetningin en fullbyggð hverfi Valla, Skarðshlíðar, Hamraness og Áslands, munu telja um 13.000 íbúa. Heilsugæsla á svæðinu myndi auk þess þjóna íbúum úr öðrum hverfum bæjarins og kalla þessar tölur á rekstur nokkuð stórrar stöðvar á svæðinu.
„Gríðarleg þörf er á að auka og efla þjónustu við ört stækkandi hóp íbúa og eldra fólks í samfélaginu og í takti við framtíðarsýn og nýja aðgerðaráætlun ríkisins sem ber yfirskriftina ,,Gott að eldast“. Við höfum átt gott samtal við heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins að undanförnu og skýr vilji beggja aðila til að byggja upp nýja og glæsilega heilsugæslu í Hafnarfirði,“ er haft eftir Rósu Guðbjartsdóttir, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, í tilkynningunni.
Vonir standa til að ákvörðun um uppbyggingu á nýrri heilsugæslu verði tekin á allra næstu mánuðum enda um að ræða mikilvæga viðbót við þá heilsugæsluþjónustu sem þegar er í boði í bæjarfélaginu.